17október

einn á móti milljón

Ég er með leiðinlegt lag á heilanum... Það kunna, held ég, allir þetta lag.
Því einu sinni, fyrir að mig minnir, ekkert svo löngu, var þetta lag spilað grilljón sinnum á dag á hverjum degi.
Nei, það er ekki Hit me Baby One More Time með Britney Spears. Og ekki heldur Hey Jude með The Beatles.
Heldur... (trommur)
         Það er Daloon dagur í dag
Og vitiði, ég gúgglaði það. Til að finna textann, og ótrúlegustu hlutir komu upp..

Annars erum við Drúna og Nonna að fara að fara í þýsku próf á morgun. Og stærðfræðipróf á morgun.
Og íslenska á mánudaginn.. Þýska á miðvikudaginn.. Og stærðfræði á föstudaginn..
Og okkur hlakkar báðum til að byrja í ensku 503 og lesa Wuthering Heights..
Eða kannski er ég bara rugluð og er að rugla..
Adios amigos adios!
Eða ef þið mynduð nú vera stúlkur þá bara:
Adios amigas adios!
Drúna...
PS.. maður er bara orðinn lipur í spænskunni og svona
17. október 2007 klukkan 17:59
Drúna og Nonna
4 athugasemdir
29september

of gömul til ađ skrifa dagbók?

12 júlí 1999.
Í dag fór ég upp í sumarbústað með ömmu og afa. Mér fannst það rosalega gaman. Afi gaf mér bangsímon bangsa þegar við komum við í bónus á leiðinni þangað.
Við ætlum að vera í 1 nótt svo ég kem heim á morgun. Hérna er blóm sem ég týndi.
Ég ætla að skrifa aftur í dagbók á morgun.
Oddrún

17 ágúst 2000.
Ókey. Í dag fór ég í sund með Önnu. Og ég týndi úrinu mínu!! Ég verð örugglega lamin þegar ég kem heim. Mamma skipti nebbninlega um batterí í því um daginn og það kostaði 400 krónur.
Hef ekkert meira að segja.
Oddrún
PS. Klukkan er sko orðin hálf tólf!!

29 september 2007.
Vá hvað ég var þroskaheft léleg að skrifa dagbók þegar ég var 9 og 10 ára. Ég var að taka til í herberginu mínu og fann stílabók sem ég kannaðist ekki neitt við. Svo ég ákvað að opna hana áður en ég fleygði henni í ruslið. Og það var yndisleg bók. Rosa töff með Tweety utaná.
Í henni voru bara 2 'færslur' og þær voru svona hrottalega mikil bókmenntaverk. Vá. Og dautt blóm, sem hefur verið bleikt í fyrra lífi, því blaðsíðan er bleik fyrir aftan.
Ég efast líka um að ég hafi verið lamin fyrir að hafa týnt úri með splúnkunýju batteríi.
rieben haben
En það sem er helst í fréttum frá okkur Nonnu er að við fórum saman til Raufarhafnar. Auðivtað voru Gyða, Silla og Solveig þar með í ferð og er helst frá að segja að við gerðum: ekkert. Jú, við fórum í pool.. Og spiluðum pictionary. Og skoðuðum heimskautagerðið.
En svo gerðum við mest lítið. Ég ákvað hins vegar að hætta alveg við æskudrauminn minn um að verða diskaþeytirrieben haben

Og svo var busað.. Þannig að núna eru bara eldra árs nemar og 'nýnemar í skólanum'
Og svo var busaballið um daginn. Það var rosa gaman. Nema ég ákvað að taka aftur upp æskudrauminn minn: að verða diskaþeytir..
Vá.. Hvaða idjóti myndi setja á pásu 3 sinnum í miðju Britney Spears lagi!?!?!

Mæli með bókinni sem við erum að lesa í íslensku. Gaurinn sem skrifaði hana er greinilega húmoristi.. Haha..
Sjáumst.. Drúna
29. september 2007 klukkan 22:48
Drúna og Nonna
3 athugasemdir
04september

ofurhetjukraftar?

okey. við erum afar kröftugir bloggarar ég og nonna.
hún er að púla við að læra, ég er að hangsla í líffræði.. eða, eitthvað..
okye. en plön komandi tíma eru þessi:

fara í pussy harbour!
dimmitera
próflokaferð
útskriftarferð
útskrift
sumar
útlönd

að minnsta kosti hljóma þessi plön skemmtileg. annars erum ég og nonna held ég bara einhverjar þær óákveðnustu kindur í öllu menntaskólakerfinu á íslandi. en við erum allavega tveimur árum á undan öllum hinum óákveðnu kindunum.
nonna keypti sér stígvél í gær. drúna las aftur lady chatterley's lover. ég var búin að gleyma lady jane og john thomas.. og blómunum..
ó, hvað ég elska súrrealisma!
svo er það bílprófið eftir eina viku. loksins loksins loksins. ég er ekki bara óákveðin, heldur líka löt.
kannski maður skelli sér meira að segja bara sem skiptinemi til ástralíu. kannski get ég verið eins og stelpurnar í þáttunum þarna. h2o minnir mig að þeir heiti nú.
en svo líður nú að prófaviku. friðsemd er dáð af öllum fyrir að hafa ekki lokapróf. við nonna ætlum að stofna aðdáendaklúbb, kannski.
en þar sem líf okkar nonnu er ekkert o.c. sjónvarpsþátta-efni (eða þá frrrrábært gossip girl sjónvrpsþátta-efni) þá er kannski best að hætta bara núna.
Image and video hosting by TinyPicómægawd hvað það rígndi mikið á okkur..: ég, anne & clara
04. september 2007 klukkan 13:54
Drúna og Nonna
5 athugasemdir
22ágúst

huajs

Nú er allt byrjað á fullu í skólanum aftur eftir skemmtilegt sumar.
Mér tókst loksins að næla mér í bílpróf og ég stóð mig gríðarlega vel sem yfirmaður hreinsideildar GBverk. Fékk að vera á fyrirtækisbílnum og allt. Já þetta hljómar voða stórt en actually þá á pabbi fyrirtækið og þar af leiðandi bílinn svo ég var bara á pabba bíl og ég var bara yfirmaður yfir sjálfri mér. Flott.

Skólinn er ansi strembinn og mér finnst ég vera geðveikt fullorðinn að vera komin á síðasta ár mitt í menntó, ef allt gengur eins ég hef planað. Ásamt skólanum tek ég 2 áfanga í fjarnámi og ég held að ég sé að fara á sjálfsvarnarnámskeið með Míu og Sólveigu. Hmmm. Eitthvað svona efeinhvereraðráðastáþigsemerstærrienþúþágetrursamtvariðþig kind of thing.

Guðný Debora er farin til USA og kemur ekki heim fyrr en næsta sumar! Ég held ða ég Bjözzy munum hafa vikulega fundi til að hittast og sitja bara og sakna hennar:/ Ekki gott plan??

Fyrsta vikan í skólanum var stórslys. Ég var næstum búin að hætta við allt saman og kaupa mér miða aðra leiðina til Timbúktu til að læra að ríða úlfalda eða eitthvað. Jább, það var svo slæmt. En núna er þetta alltaf að verða betra og betra, ég sætti mig betur og betur við bekkinn minn á hverjum degi og það er góður mórall í öllu. Loksins er allt eins og það á að vera skulum við segja. Ég lifði af töfludæmið mitt og ég held að ég nái stærðfræðinni þessa lotuna með betri einkunn en síðast, en við skulum sjá. . . .

Ég bloggaði nú bara til að fá meira lífí þessa síðu:)

Látið heyra í ykkur honbons

Kv Nonna
22. ágúst 2007 klukkan 23:39
Drúna og Nonna
1 athugasemd
27júlí

Hola!

Haha, Jóna er búin að vera dugleg á blogginu í júlí..
En ég er komin heim.. Úr rigningunni, en eins og sumir hljóta að vita því það er í fréttunum þá er þetta riginingamesta sumar í Evrópu í 150 ár!
Líka í syðsta partinum af Noregi..
Ekkert rosalega langt frá skólanum sem við gistum í voru allir vegir að flæða og eitthvað rosa vesen en þar sem skólinn okkar var á hól, þá tókum við ekkert rosa mikið eftir flóðunum.. En við sáum rigninguna.. Váts!

En þessi mánuður var samt yndislegur.. Hangsa með Antonio Banderasss og Anne.. Tína blóm og skoða íkorna.. Haha, svo líður mér ennþá hálfheimskulega að vera farin að tala íslensku.. Einu orðin sem ég sagði á íslensku úti var.. 'góða nótt' 'góðan daginn' 'kjúklingur og svo einstaka sinnum 'apariðill' því ill-ið í enda orðsins er mjög vinsælt meðal útlendinga.. Þeim finnst rosalega gaman að prufa.. (samt bara fararsjtórar.. engin börn, haha) Við vorum einu sinni á Wok bar og allir 22 fararstjórarnir voru að segja orðið aftur og aftur og reyna að ná ill-inu og fólkið á næsta borði grét úr hlátir.. Lítill fugl sagði mér að þau væru íslendingar og að sonur þeirra væri að keppa í fótbolta í næsta bæ.. En það var líka í eina skiptið í öllum mánuðinum mínum úti sem ég talaði íslensku..
Ég get skrifað heila 2000 blaðsíðna bók um mánuðinn minn í noregi svo ég ætla bara að hætta núna..
Best að snúa sér að skólabókunum..
           Hugs from Oddrun
27. júlí 2007 klukkan 17:55
Drúna og Nonna
2 athugasemdir
18júní

Ţórmerkurferđin Allsvađalega

Sagan sem þið hafið beðið spennt eftirJ 

Lagt var í hann frá Reykjavíkinni síðastliðinn föstudag og brunað á Selfoss þar sem Daníel var tekinn uppí. Keyptar voru vistir og eitthvað gott og tekinn rútan frá Hvolsvelli inní Þórsmörk. Sigrún, Vera, Helga, Silja, Drúna, Néli og ég deildum risa stóru 8 manna tjaldi, gaman er að segja frá því að við vorum fljótari að tjalda heldur en Ísleifur en hann dvaldi í pínulitlu 2 manna tjaldi.

Eftir að allir höfðu tjaldað var byrjað að grilla og éta og allir í gúddí fíling. Sumir í meira gúddí fíling en aðrir. Kvöldið og nóttin leið við mikil slagsmál, róluleiki, brjóstatal og varðeld og allir skemmtu sér heví vel. Sumir skemmtu sér samt meira en aðrir. Má þar nefna Ísleif sem var að drukkna í kvennfólki á ákveðnum tímapunkti.
Nóttin var einstaklega undarleg, í fyrsta lagi þá uppgötvaði ég að rennilásinn á svefnpokanum mínum var bilaður svo tærnar á mér voru skemmtilega kaldar, í öðru lagi þá uppgötvaði ég (og allir hinir í tjaldinu) að Oddrún talar uppúr svefniJ “Það er flís í ullarsokknum mínum” Flooott.
Morguninn eftir voru allir undarlega hressir, Helga, Sigurborg og Steindór skelltu sér í fjallgöngu en svo voru aðrir ekki eins hressir. Þar á meðal var Daníel en það þurfti að vekja hann 8 sinnum og svo Óskar sem bara vaknaði ekki. Við vorum 6 kúkalabbar sem vildum halda heim á laugardeginum og þar sem okkur hafði verið tjáð að rútan væri hálf 4 frá Básum til Hvollsvallar þá vorum við mætt stundvíslega til að vera viss um að missa ekki af rútunni. En neeii, ekkert má vera of auðvelt. Kemur í ljós að rútan fór hálf 2 en ekki hálf 4. Obobb, þarna voru við komin í bobba. En Drúna okkar sér þá rútu og hleypur á eftir henni og við vorum svo heppinn að fá far með henni á Hvolsvoll. Þessi rúta var í eigu fjölskyldu í sumarfríi sem var á rúntinum um Þórsmörk, amma, afi, börn og barnabörn. Við fengum að fljóta með og okkur var boðið að koma með í göngutúr um svæðið og við slóum tilJ
Skemmtilega óvæntur göngutúr. Lán í óláni.
Nema fyrir Néla sem átti að vera mættur í vinnuna um kveldið.
Þegar á Hvolsvoll var komið var bíllinn hennar Sigrúnar fylltur og farið á pitsustað og etið. Síðan var Néla skutlað á Selfoss en hann var bæði 4 tímum of seinn í vinnuna og blautur í lappirnar. 
 

Rosalega skemmtileg ferð og ég er búin að setja myndirnar mínar inn á síðuna og þá er bara eftir að sjá myndirnar frá Silju, Drúnu og Sigrúnu
J Takk fyrir mig. Nenni ekki að blogga meir, 
Heil og sæl,
kv Nonna

18. júní 2007 klukkan 21:10
Drúna og Nonna
Almennt
19 athugasemdir
18júní

Ferđasagan

Er að koma.. Hún er bara svo æsispennandi að við getum ekki sett hana inn strax :)
18. júní 2007 klukkan 08:55
Drúna og Nonna
3 athugasemdir
03júní

próf

Jæja, á morgun byrjar lokavikan í lotunni sem þýðir að þá er bara eftir 1 vika af skólanum, plús prófavikan og plús upptökuvikan (stærðfræðifall???)
Það gerir 3 vikur. 3 vikur eru 3x7 dagar, sem gera 21 dag. En þá eru bara 4 dagar eftir í að ég fari til Noregs. Þá fara 4 vikur í það, svo kem ég heim, og fæ viku og hálfa. Þá er aftur kominn skóli. Mér finnst þetta sumarfrí vera allt allt of stutt.
Nýjasta nýtt er svo víst að ég tala í svefni. Í fyrrinótt var ég steinsofandi og kallaði á móður mína. Hún kom og ég sagði:
"Mamma, viltu setja pepsíið mitt inn í ísskáp, ég ætla að skila því á morgun"
Þegar móðirin segir svo "Haa?" er ég farin beint aftur í draumalandið. Um hálftíma seinna kalla ég aftur á hana og segi:
"Þetta er allt í lagi, ég er hætt við"
Sem að kemur okkur aftur að nýjasta áhyggjuefni mínu; hvað ef ég er sofandi og segi eitthvað ljótt, eins og: "Alda mér finnst nýju skórnir þínir ógeðslega ljótir" eða "Apariðill" eða eitthvað álíka heimskulegt og úber random.. Hvað gerist þá eiginlega??
Ég er farin að hugsa í hringferlum og þýskum sögnum..
:) Oddrún (sem ætlar að láta koma með mynd af Valgerði, en er ekki viss hvort það virki því ég er rosalega léleg í að láta þessa heimasíðu virka...)

<a href="http://www.flickr.com/photos/8580618@N07/525305981/" title="Photo Sharing"><img src="http://farm2.static.flickr.com/1192/525305981_274ae211ea_o.jpg" width="360" height="269" alt="Valgerður" /></a>
03. júní 2007 klukkan 21:26
Drúna og Nonna
13 athugasemdir
17maí

Komin igen

Mig langar að vita hvort að það er einhver sem er ekki komin með pínu oggupons uppí kok á þessu stjórnmálafólki á þessu litla skeri okkar. Ég var að enda við að horfa á fréttir+kastljós og það sem þetta fólk getur talað, talað og talað, bullað og bullað. í einu og sama viðtalinu getur það talað um sama hlutinn og komist að mismunandi niðurstöðu eftir því hvenrig fréttamaðurinn orðar hlutina. Sem sagt það segir eitt en 5 mínútum síðar segir það annað og það er ekki hægt að taka neitt mark á þessu fólki. Sama hvort það er hægri grænt, vinstri snú eða vinstri blár eða whatever. (nú bíst ég við svari frá néla um ágæti vinstri grænna r sum)

Jæja, að einhverju öðru.
Í dag er uppstigningardagur. Vúhú. Þar sem ég er góður borgari (eða bæjari) og er sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum þá var ég að hjálpa gamla fólkinu að fara í kirkju og kaffi á eftir í safnaðarheimilinu í dag.  
1) ég, enn og aftur, undraðist hvernig mér datt í hug að sækja um á Hrafnistu.
2) gamalt fólk talar hátt ef það er ekki með heyrnatæki.
3) og ég held að ég hafi orðið fyrir kynferðislegri áreitni frá prestinum en það er efni í annað blogg.

Bílpróf. Ekki skil ég ennþá hvað er svona merkilegt við bíla. Þetta eru bara mengandi drápstól (jájá voða mikilvæg til þess að koma okkur á milli staða, bleble) sem er fokk leiðinlegt að keyra og læra á. Ég held að Gyða hafi rétt fyrir sér. Ég mun enda bíllaus og bílprófslaus ein í litlum húsbíl með nokkra ketti. Nema ég mun obviously ekki geta keyrt húsbílinn þar sem ég mun ekki vera með bílpróf. Framtíðin er björt pípol!

Ég hugsa að ég hendi inn myndum á eftir. Þið getið kíkt á það ef ég hef munað eftir að setja þær inn. Ég hef ósköp lítið að segja meir. Nema bara það að kötturinn minn er 2 ára í dag. Og ég er enn í skólanum og ekkert gengur með skólablaðið. En það er aðalega vegna þess að ritstjórinn þjáist af leti á hæsta stigi. (hvaða asni er eiginlega í ritstjórn) Aftur, þá er það efni í annað blogg. 

kv. Nonna sem nennir ekki að fara yfir textann til að tékka á innsláttarvillum

17. maí 2007 klukkan 20:37
Drúna og Nonna
10 athugasemdir
15maí

Haha LoL

Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 12.5%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 30%
Stuðningur við Samfylkinguna: 25%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 87.5%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 32%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 40%

Ok, smá :)
Kemur rosa flott blogg frá Nonnzenegger æa næstu dögum :)
Kv. Drúna
15. maí 2007 klukkan 22:43
Drúna og Nonna
Engin athugasemd

Atburđarteljari

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leikur dagsins

Könnun

Eru svona kannanir á heimasíđum leiđinlegar?

Innskráningar kubbur